Hjónin Baldur Daníelsson og Ragnheiður Árnadóttir opna í sumar nýtt gistihús í Súðavík. Húsið nefnist Blómsturvellir og var reist árið 1929, en þau Baldur og Ragna hafa unnið að endurbótum á húsinu um nokkurra ára skeið. Húsið er með fjögur svefnherbergi og góða aðstöðu fyrir 6 til 8 manna hópa og hentar [...]
Nýtt hótel opnar í húsakynnum Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði í sumar, en vegna 10 prósent niðurskurðar á fjárframlögum frá ríkinu verður heilsustofnuninni lokað í tvo mánuði í sumar. Forsvarsmenn stofnunarinnar tóku þá ákvörðun að nýta húsin til hótelrekstrar undir nafninu Hot Springs Hotel og stendur undirbúningur sumarvertíðarinnar nú sem hæst. Hótelið [...]
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur sett upp vefsíðu þar sem hægt er að kynna sér styrki til nýsköpunar í atvinnusköpun, en meðal þess sem hægt er að sækja um styrki fyrir er ferðaþjónusta. Vestnorræna ferðamálaráðið, Norræna Atlantssamstarfið og Norræna nýsköpunarmiðstöðin veita öll styrki til ferðaþjónustuverkefna og nýsköpunar innan greinarinnar. Nýsköpunarmiðstöðin heldur utan um átaksverkefni um markvissa upplýsingamiðlun og fjármögnunarleiðir innan norræns [...]
Icelandair Hotels vinna nú að uppbyggingu tveggja nýrra hótela. Annað er við Þingvallastræti á Akureyri og er stefnt að opnun þess nú í vor, en hitt er við Mýrargötu í Reykjavík og opnar vorið 2012. Icelandair Hotel Akureyri er til húsa í fyrrum húsakynnum Háskólans á Akureyri og er nú unnið að [...]
Nýliðinn janúarmánuður var metmánuður í komu ferðamanna til landsins. Þetta kemur fram í tölum frá Iðnaðarráðuneytinu. Í janúar komu um 22 þúsund erlendir gestir til landsins og er það fjölgun um 3500 gesti miðað við sama mánuð í fyrra, eða tæp 19 prósent aukning. Hafa erlendir gestir aldrei verið jafn margir í janúar frá því [...]
BookIceland bókunarvélin hefur nú verið opnuð til prufu en formleg opnun á vefnum er 10. mars 2011. Nú þegar er hægt að bóka gistingu á þeim stöðum sem hafa skráð sig í kerfið og einnig er komið nokkurt magn upplýsinga um áhugaverða ferðamannastaði. Næstu vikur verður unnið hörðum höndum að lokafrágangi kerfisins, greinaskrifum og [...]
Bókanir hafa farið vel af stað fyrir sumarið 2011 og vonir standa til að það verði talsverð aukning á gistinóttum frá liðnu sumri. Nýverið valdi Lonely Planet ferðahandbókin 10 áhugaverðustu ferðamannastaði heims fyrir árið 2011 og voru Vestfirðir á Íslandi einn þeirra staða. Ferðamennska á Vestfjörðum hefur aukist mikið á [...]
Á Vísindavef Háskóla Íslands má finna spurninguna Hvaðan koma flestir ferðamenn sem heimsækja Ísland? Þeirri spurningu er auðsvarað með því að skoða tölur Ferðamálaráðs um komur hingað til lands á undanförnum árum. Flestir ferðamenn sem koma til Ísland eru Bretar og á það við hvort sem teknir eru með ferðamenn skemmtiferðaskipa eða ekki. Lengi [...]
Það er óhætt að segja að flestöll ferðalög mín núorðið byrji á Google. Ég er sennilega eins og flestir aðrir; spenntur fyrir nýjungum en vill samt finnast ég á heimavelli þegar ég kem á nýja staði. Með ótrúlegum vexti internetsins á síðustu 15 árum hefur það farið að leika sífellt stærra hlutverk í ferðaþjónustu. [...]
Bóka gistingur á Íslandi
Ísland

